Dýrafjörður í dag: - Tveir klógulir ernir flugu um innanverðan fjörðinn með arnsúg í flugnum
Í dag var farið fyrir Dýrafjörð: Kjaransstaðir, Drangar, Botn og Lambadalshlíð. Stórkostleg náttúruparadís. Allur gróður í blóma. Birkið angaði um allt. Enginn birkifeti sjáanlegur. Ekki mikið af grænjöxlum á berjalyngi. Kannski verður litið um ber í sumar. Sjáum til. Ekki öll nótt úti enn. Vegurinn slarkfær fyrir sæmilega bíla. Utan Drangagils munu Dýrafjarðagöng svo opnast í fyllingu tímans.
Tveir klógulir ernir flugu yfir. Konungur fuglanna. Tignarleg sjón.
Meðf. mynd er af Kjartani Ólafssyni, lækni, sem var sonur Ólafs Ólafssonar, skólastjóra á Þingeyri. Kjartan þjónaði Flateyrarlæknishéraði upp úr 1950. Eitt sinn er hann var á ferð í botni Dýrafjarðar, kom hann konungi fuglanna til aðstoðar. Hann hafði orðið fyrir hremmingum nokkrum. Var hann þurrkaður í fjárhúsi Ólafs skólastjóra yfir helgi. Var svo sleppt á vit örlaga sinna og“dró þá arnsúg í flugnum“.
Ljósmyndina tók Lýður Jónsson.