27.10.2012 - 23:14 | BIB
Dýrafjarðarmyndir á sýningu Myndlistarfélags Árnesinga
Myndlistarfélag Árnessýslu heldur þessa dagana málverkaýning í Samkomuhúsinu GIMLI á Stokkseyri. Síðasti sýningardagur er á morgun sunnudaginn 28. okt. kl. 13 til 18.
Einn málara er Bjarni H. Joensen sem býr í Þorlákshöfn en hann á líka hús á Þingeyri þar sem hann dvelur oft. Meðal mynda hans á sýningunni eru tvær myndir úr Dýrafirði.
Gestur á sýningunni í dag var m.a. Kristjánn Runólfsson, hinn
skagfirski hagyrðingur í Hveragerði, sem rekur ættir sínar til Þingeyrar.
Langafi hans var Þórsteinn Jónsson, lyfrarbræðslumaður á Þingeyri. Sonur hans
var Kristján sem fæddur var á Þingeyri, afi Kristjáns hagyrðings.