A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Kristján Möller sprengir hér síðasta haftið í Bolungarvíkurgöngum.
Kristján Möller sprengir hér síðasta haftið í Bolungarvíkurgöngum.
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir það misskilning sem fram kom í vefmiðlinum bb.is að Dýrafjarðargöng hafi verið slegin af. Hið rétta sé að þeim hafi verið seinkað eins og mörgum öðrum verkum vegna niðurskurðar á fjármagni til vegagerðar á næstu árum. Þetta kemur fram í grein sem ráðherra hefur sent bb.is. Þar segir að vegna mikils niðurskurðar hafi þurft að raða á ný og nefnir hann einnig að vegna mikilla hækkana á verkefnum sem þegar er unnið að hafi þurft að veita meira fjármagni í þau. Það þýði einfaldlega að verkefni færast aftar.

 

,,Engin verk hafa verið slegin út af áætlun en verk færast aftar vegna ofanritaðs. Þetta á við um öll verk, jafnt Dýrafjarðargöng sem og önnur mikilvæg verk um land allt.

 

Allar ályktanir, t.d. Fjórðungssambands Vestfirðinga, sveitarstjórna og skoðanir sveitarstjórnarmanna, hafa verið í þá átt að leggja höfuðáherslu á framkvæmdir á sunnanverðum Vestfjörðum og er það gert í þessari áætlun," segir ráðherra í grein sinni og ítrekar að áfram verði unnið að þeim verkefnum.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31