A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
15.07.2015 - 20:41 | bb.is,BIB

Dýrafjarðargöng næst í röðinni

Einar K. Guðfinnsson
Einar K. Guðfinnsson
Það er alveg ljóst að Dýrafjarðargöng verða næsta nýja jarðgangaverkefnið í landinu. Þetta segir Einar Kristinn Guðfinnsson, forseti Alþingis og þingmaður Norðvesturkjördæmis, í grein á vef bb.is. „Í síðustu samgönguáætlun var kveðið skýrt á um að svo sé og sérstaklega nefnt að jarðgöng undir Fjarðarheiði og til Seyðisfjarðar komi að loknum Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum,“ skrifar Einar Kristinn.

Í hádegisfréttum Bylgjunnar á mánudag sagði Höskuldur Þórhallsson formaður samgöngunefndar að Fjarðarheiðargöng gætu farið í útboð á næsta ári eða því þarnæsta. 


Einar Kristinn segir samgönguáætlun innanríkisráðherra ekki geta verið skýrari: „Í þeirri samgönguáætlun sem innanríkisráðherra lagði fyrir Alþingi nú í ár eru 4,6 milljarðar lagðir til verkefnisins Dýrafjarðargöng, á árunum 2016 til 2018. Einungis eru lagðir til fjármunir til rannsókna varðandi Fjarðarheiðargöng á árunum 2015 til 2018. Ljóst er því hver stefna stjórnvalda er. Fyrst klárum við Dýrafjarðargöng og svo er stefnan sett á Fjarðarheiðargöng. Skýrara getur það ekki verið. Þetta er sem sagt stefnumótun ríkisstjórna og þingsins á síðasta og þessu kjörtímabili.“ 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30