A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
02.02.2017 - 20:34 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is,aflafrettir.com

Blossi ÍS 225 á Flateyri aflahæstur í janúar 2017

Blossi ÍS 225 frá Flateyri.
Blossi ÍS 225 frá Flateyri.
« 1 af 2 »

Janúarmánuður var gjöfull fyrir smábátinn Blossa ÍS frá Flateyri.

Vefurinn aflafrettir.com greinir frá að í janúar var Blossi aflahæstur báta undir 13 brúttotonnum.

Blossi fiskaði 50,6 tonn í 11 róðrum og mestur afli í róðri var 7,9 tonn.

Skipstjóri á Blossa er Birkir Einarsson og báturinn er gerður út af Hlunnum ehf.

Í öðru sæti listans er annar vestfirskur bátur, Svalur BA sem landar ýmist á Patreksfirði eða á Bíldudal. Svalur fiskaði 40,6 tonn í 8 róðrum.

 

 

 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31