16.05.2015 - 20:11 | Bjarni Guðmundsson,BIB
Bjarni Guðmundsson segir norskar áhrifasögur á Hvanneyri
Í tilefni Íslenska safnadagsins á morgun, sunnudaginn 17. maí 2015, á þjóðhátíðardegi Norðmanna, ætlar Dýrfirðingurinn Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri að segja nokkrar sögur um norsk áhrif á íslenskan landbúnað í tímanna rás.
Sögustundin hefst um kl. 13.30 í Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri.
Henni lýkur með dálítilli andakt við "nýjasta" grip Landbúnaðarsafnsins - Skerpiplóginn norska - vænst er fleiri sögumanna til þess að minnast hinnar stuttu gullaldar sem hann átti í íslenskri búnaðarsögu á síðustu öld.
Ullarselið er opið á sama tíma, kl.13-16.
Aðgangur að safninu er þá ókeypis.
Allir velkomnir.