A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
26.07.2017 - 07:15 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Gíslastaðir í Haukadal,Fréttablaðið,Björn Ingi Bjarnason

Alltaf þúsund árum á eftir hinum

Marsibil og Elfar Logi með Gísla á milli sín og Elfar Logi með afa stelpuna Sögu Nótt Friðriksdóttur á handleggnum.  MYND/HEIÐUR EMBLA ELFARSDÓTTIR
Marsibil og Elfar Logi með Gísla á milli sín og Elfar Logi með afa stelpuna Sögu Nótt Friðriksdóttur á handleggnum. MYND/HEIÐUR EMBLA ELFARSDÓTTIR
« 1 af 2 »

Á Gíslastöðum í Dýrafirði sjá Elfar Logi Hannesson og Marsibil Kristjánsdóttir um fornsagnatengda viðburði. Í kvöld, 26. júlí 2017, fjallar Guðni Ágústsson um Hallgerði langbrók.

Guðni Ágústsson heldur mikið upp á Hallgerði langbrók, hann ætlar að messa yfir okkur í kvöld klukkan 20. Það er mikil spenna hér í Dýrafirðinum fyrir hans komu,“ segir Elfar Logi Hannesson stórleikari, staddur á slóðum Gísla Súrssonar í Haukadal þegar hann svarar síma. „Gísli hugsaði fyrir því að hér yrði GSM-samband,“ segir hann glettinn.

Elfar Logi stendur fyrir mánaðarlegum menningarviðburðum í hinum sögufræga dal, ásamt konu sinni Marsibil Kristjánsdóttur. Hann tekur fram að hún sé heilinn á bak við allt saman, sjálfur sé hann bara vinnumaðurinn á bænum! „Við erum aðallega föst á landnámstímanum, alltaf þúsund árum á eftir hinum,“ segir hann. „Nú erum við búin að mublera upp Gíslastaði sem er gamalt félagsheimili, ekki þó þúsund ára heldur frá 1936, en innan dyra höfum við breytt því að víkingasið.“

Þau hjón keyptu húsið 2005, árið sem þau bjuggu til einleikinn um Gísla Súrsson sem enn er í gangi, að sögn Elfars Loga. „Tjörnin, sem Gísli og félagar spiluðu íshokkí á, samkvæmt sögunni, er bara hér fyrir utan. Það er alltaf sterk upplifun fyrir fólk að vera á söguslóðum.“ Hann segir borð og bekki fyrir fjörutíu manns á Gíslastöðum.

„En við höfum hýst mun fleiri. Um daginn var Óttar geðlæknir hjá okkur að fjalla um sexið í Íslendingasögum og stútfyllti kofann. Í ágúst segir Margrét Sverrisdóttir frá draumum og fyrirboðum í vestfirskum Íslendingasögum og í september verður Víkingahátíð fjölskyldunnar. Við erum búin að bóka viðburði fram á næsta ár.“ Sem sagt að vetrinum líka? „Já, já, goðarnir sjá til þess að hingað sé alltaf fært, Freyr er okkar goði, hann heldur opnu.“

Fréttablaðið 26. júlí 2017.

 

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30