A A A
  • 1986 - varð kjarnorkuslysið í Tsjernóbyl
22.02.2015 - 21:26 | BIB

„Alltaf fer ég vestur“

Hljómsveitin Æfing frá Flateyri á 45 ára afmælishátíð sveitarinnar sem haldin var á Flateyri í maí 2013.
Hljómsveitin Æfing frá Flateyri á 45 ára afmælishátíð sveitarinnar sem haldin var á Flateyri í maí 2013.
« 1 af 2 »

Hljómsveitin Æfing frá Flateyri ætlar að blása til gleði- og samstöðuhátíðar í Reykjavík hinn 17. apríl 2015 með stuðningi átthagafélaga Dýrafjarðar, Súgandafjarðar og Önundarfjarðar.

Skemmtunin fer fram í Súlnasalnum á Hótel-Sögu og hljómsveitin hefur tekið að sér að kanna áhuga félags- og heimamanna og hvetja alla um leið til að fjölmenna á hátíðina. Formleg dagskrá liggur ekki fyrir en verið er að vinna í henni með tilliti til þátttöku skemmtikrafta heiman að og að heiman. Þó liggur fyrir að þarna verður alvöru sveitaball í boði, með mat og skemmtun að auki. 


Hljómsveitin Æfing

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30