A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
08.09.2008 - 00:00 | bb.is

Allsherjarsmölun eftir þrjár vikur

Allsherjarsmölun í Ísafjarðarbæ fer fram helgina 27 - 28. september. Landbúnaðarnefnd Ísafjarðarbæjar leggur til að smölun fari fram á þann veg að bændur og aðrir fjáreigendur smali eftir niðurröðun í sláturhús. Það eru tilmæli landbúnaðarnefndar til bænda og annarra fjáreigenda, að þeir sleppi ekki fé úr allsherjarsmölun í haga fyrr en eftir 10. október. Nefndin ræddi þá erfiðleika sem verða við framkvæmd fjallskila samhliða því að bæir fara úr ábúð. Sérstaklega á þetta við í Önundarfirði norðanverðum þar sem allir bæir eru orðnir fjárlausir. Nefndin heitir á alla fjáreigendur sem eiga fjárvon þar að koma að smölun þess. Þá bendir nefndin á að nauðsynlegt er að koma upp aðhaldi til að smala fé í á Hvilftarströnd.

 

Nefndin leggur til að eftirtaldir verði gangna- og réttarstjórar í Ísafjarðarbæ:

 

Í Skutulsfirði:


Hraunsrétt:
Hjálmar Sigurðsson.

 

Kirkjubólsrétt:
Steingrímur Jónsson og Kristján Jónsson.

 

Arnardalsrétt:
Halldór Matthíasson.


Í Súgandafirði.


Keflavík að Seli:
Svavar Birkisson.

 

Frá Seli að Sunddal:
Karl Guðmundsson.

 

Sunddalur fyrir Sauðanes að Flateyri:
Þorvaldur H. Þórðarson.


Í Önundarfirði:


Svæði 1. frá Flateyri að Breiðadalsá:
Þorvaldur H. Þórðarson.

 

Svæði 2. frá Breiðadalsá að Vífilsmýrum:
Magnús H. Guðmundsson.

 

Svæði 3. Vífilsmýrar að Þórustöðum:
Ásvaldur Magnússon.

 

Svæði 4. Þórustaðir að Ingjaldsandi:
Jón Jens Kristjánsson og Guðmundur St. Björgmundsson.

 


Í Dýrafirði, Mýrahreppi hinum forna:


Svæði 1. Ingjaldssandur
Elísabet Pétursdóttir.

 

Svæði 2. frá Fjallaskaga um Ytri- Hlíðar, Nesdal og Barða
Elísabet Pétursdóttir.

 

Svæði 3. frá Fjallaskaga að Alviðru
Hermann Drengsson.

 

Svæði 4. Alviðrufjall og Núpsdalur
Guðmundur Ásvaldsson og Bergsveinn Gíslason.

 

Svæði 5. frá Hvassahrygg að Glórugili.
Jón Skúlason og Karl A Bjarnason

 

Svæði 6. frá Glórugili að Höfða
Hermann Drengsson og Steinþór A. Ólafsson.

 

Svæði 7. Höfði að Botnsá.
Sighvatur Jón Þórarinsson og Guðmundur Steinþórsson.

 


Í Dýrafirði, Þingeyrarhreppi hinum forna:


Svæði 1. frá Botnsá að Þingeyri.
Ómar Dýri Sigurðsson.

 

Svæði 2. Brekkudalur að Kirkjubólsdal
Guðrún Steinþórsdóttir.

 

Svæði 3. Kirkjubólsdalur að Hólum
Sigrún Guðmundsdóttir.

 

Svæði 4. Hólar að Lokinhömrum
Friðbert Jón Kristjánsson og Kristján Gunnarsson.


Í Arnarfirði, Auðkúluhreppi hinum forna:


Svæði 1. Lokinhamradalur
Friðbert Jón Kristjánsson.

 

Svæði 2. Stapadalur og Álftamýri
Guðmundur G. Guðmundsson.

 

Svæði 3. Bauluhús að Hjallkárseyri
Hreinn Þórðarson.

 

Svæði 4. Hjallkárseyri að varnarg. á Mjólkárhl.
Steinar R. Jónasson.

 

Svæði 5. Frá Mjólkárhlíð að Laugabóli
Þorbjörn Pétursson.

 

Svæði 6. Laugaból og Hokinsdalur
Árni Erlingsson.


Húsráðendur þar sem aðkomufé er rekið til réttar eða húsa skulu tilkynna eigendum þess um það svo fljótt sem auðið er.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30