A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
15.08.2015 - 06:59 | Hallgrímur Sveinsson

„Ætli maður fylgi þér ekki hringinn!“

Dóra Þórhallsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dóra Þórhallsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

Nokkrar léttar sagnir af Ásgeiri forseta 2.


Ásgeir hafði verið þingmaður lengi áður en hann var kjörinn forseti 1952. Fyrst sem framsóknarmaður, síðan óháður og síðast bauð hann sig fram sem alþýðuflokksmaður. Svo var það eitt sinn, þegar hann var í Alþýðuflokknum, að þau hjónin, hann og frú Dóra,  voru á ferðalagi um kjördæmi Ásgeirs, Vestur-Ísafjarðarsýslu.

Frú Dóra sagði svo frá, að þau hefðu komið í Mosdal í Arnarfirði. Þau hittu þar m. a. Guðmund bónda Jóhannsson, Gvend á Horni. Spurði Ásgeir karl hvort hann myndi ekki kjósa hann í komandi kosningum. “Jú, jú, Ásgeir minn,” sagði Gvendur. “Ætli maður fylgi þér ekki hringinn!” 

 

Hallgrímur Sveinsson.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31