A A A
  • 1953 - Borgný Gunnarsdóttir
  • 1983 - Ívar Már Valsson
24.06.2017 - 21:18 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

24. júní 1000 - Kristnitakan. Kristin trú var lögtekin á Alþingi á Þingvöllum við Öxará

Þingvellir Ljósm.: BIB
Þingvellir Ljósm.: BIB

Kristnitakan. Kristin trú var lögtekin á Alþingi á Þingvöllum við Öxará þann 24. júní árið 1000. 

Þar hafði skorist í odda með kristnum mönnum og heiðnum en Þorgeir Þorkelsson Ljósvetningagoði úrskurðaði að „allir menn skyldu kristnir vera“ og sagði: 

„Höfum allir ein lög og einn sið. Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn.“

 

24. júní 2012

Séra Agnes M. Sigurðardóttir, prestur í Bolungarvík, var vígð biskup Íslands fyrst kvenna. Hún hafði sigrað í biskupskjöri tveimur mánuðum áður, hlaut 64% atkvæða en séra Sigurður Árni Þórðarson 32%.

Morgunblaðið - Dagar Íslands - Jónas Ragnarsson.


« Júní »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30