A A A
  • 1978 - Elín Soffía Pilkington
  • 1990 - Sólrún Arney Siggeirsdóttir
  • 1993 - Jónas Kristinn Jónasson

Atburðir

Kaffidagur Dýrfirðingafélagsins 12. mars n.k.

Starfsár Dýrfirðingafélagsins hefst með árlegum Kaffidegi félagsins sunnudaginn 12. mars í Fella- og Hólakirkju. Guðsþjónusta kl. 14:00 er fyrst á dagskrá en sr. Guðmundur Karl Ágústsson predikar og þjónar fyrir altari. Kór brottfluttra Dýrfirðinga leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Guðbjargar Leifsdóttur. Þeir sem vilja taka þátt í söngnum eru hvattir til að hafa samband við Ragnar Gunnarsson í síma 8614651, senda honum skilaboð, eða kynna sér æfingartíma á fésbókarsíðu félagsins. Að guðsþjónustunni lokinni verður kaffisala í safnaðarheimilinu. Verð á hlaðborðinu er kr. 1500,- fyrir fullorðna en ókeypis fyrir börn.  Kaffinefnd félagsins gegnir lykilhlutverki í skipulagi og undirbúningi Kaffidags en framlag allra þeirra sem eru tilbúnir að leggja til kökur eða brauðmeti er vel þegið. Allur ágóði af kaffisölunni rennur í sjóð sem veitt er úr til góðra málefna í Dýrafirði. Að þessu sinni verður fjármagn nýtt til kaupa á skjávarpa sem gera mun leikskólanum kleift að nýta sér fleiri möguleika i skólastarfinu, ýta undir fræðslu, sköpun og skemmtun á annan hátt en nú er mögulegt. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt á Kaffidegi en vilja leggja málefninu lið er hægt að leggja inn á reikning Kaffisjóðs 0537-14-1001004; kt. 660875-0189. 
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31