A A A
  • 1966 - Steinar Ríkarður Jónasson
26.05.2011 - 00:37 | Hallgrímur Sveinsson og Bjarni Georg Einarsson

Björgunarsjóður Jóns Sigurðssonar

Hallgrímur Sveinsson
Hallgrímur Sveinsson
« 1 af 2 »
Sumir vegfarendur þykjast sjá tár á hvarmi styttu Jóns Sigurðssonar þegar þeir eiga leið um Austurvöll þessa dagana. Getur það verið? Ja, því ekki það, alla vega í óeiginlegri merkingu. En hvers vegna ætti sómi Íslands að gráta?

Hann grætur af því að það er viðurkennd staðreynd að sum okkar þurfa að betla til að eiga fyrir nauðsynjum.
Hann grætur af því við Íslendingar erum svo miklir aumingjar að við virðumst ekki skilja þetta og viljum ekki breyta þessu. Hann grætur af því að þeir sem hafa meira en nóg eru alltaf að heimta meira og meira. Þetta lið vill ekki gefa tommu eftir. Þess vegna grefur það sína eigin gröf. Ef rússneski aðallinn hefði þekkt sinn vitjunartíma og gefið svolítið eftir handa þeim sem sveltu, hefði byltingin í Rússlandi aldrei orðið.
Hann grætur af því við Íslendingar, þjóðin hans, hendum mat alveg blygðunarlaust. Sennilega er ekki ofreiknað að einn þriðji af öllum matvælum sem við kaupum lendi í ruslatunnunni. Ætlumst við virkilega til að þeir sem eru bjargarlausir sæki sér næringu þangað?

...
Meira
19.04.2011 - 01:02 | Hrafnhildur Skúladóttir

Þorir nýr bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar að standa með þorpunum?

Hrafnhildur Skúladóttir
Hrafnhildur Skúladóttir
- Eins og ríkisstjórnin ætlar að standa með Vestfjörðum.
Opið bréf til Daníels Jakobssonar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar.

Ríkisstjórnir undangenginna ára hafa ekki haft þann kjark að standa með Vestfjörðum, þingmenn okkar Vestfirðinga hafa engan veginn staðið sig í stykkinu í allri þeirri neikvæðu byggðaþróun sem átt hefur sér stað sl. 15 -20 ár, en nú viljum við trúa því að meðbyrinn sé okkar. Svo sem í ljós kom á nýliðnum ríkisstjórnarfundi sem haldinn var á Ísafirði.


 


Í framhaldinu langar mig að beina þeirri spurningu til nýráðins bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, hvort hann hafi kjark til að standa með þeim þorpum sem bæjarfélagið samanstendur af, fyrir utan Ísafjörð. Það er Flateyri, Suðureyri og Þingeyri. Og snúa þar með við þeirri mismunun sem við höfum mátt búa við allt frá þeirri sameiningu sem keyrð var í gegn í kjölfar hræðsluáróðurs, þess eðlis að við sem í þorpunum búum, hefðum enga möguleika á að sjá um okkur sjálf. Tíminn leiddi í ljós að sennilega hefði það nú ekki einungis verið okkur mögulegt, heldur mun heillavænlegra en það ástand sem við búum við í dag. Tek ég Súðavík sem dæmi, sem stóð utan sameiningar og hefur staðið sig með prýði. Hitt er svo annað mál að fyrst svona er komið ætti hreinlega að sameina Vestfirði alla, koma samgöngumálunum til 21. aldarinnar og vinna sameiginlega að hagsmunum okkar á landsvísu. ,,Sameinaðir stöndum við, sundraðir föllum við".

...
Meira
19.04.2011 - 00:28 | Bjarni Guðmundsson

Kirkjan á Þingeyri – aldarstaður gleði og sorga

Bjarni Guðmundsson
Bjarni Guðmundsson
Þingeyrarkirkja er orðin hundrað ára. Mér kemur hún oft í hug, ekki síst þar sem ég geri nokkuð af því að leiða gesti í Hvanneyrarkirkju í Borgarfirði og segja þeim sögu skólastaðarins þar. Kirkjurnar tvær eiga sama húsameistarann: Dýrfirðinginn Rögnvald Ólafsson. Kirkjurnar eru byggðar á svipuðum tíma; Hvanneyrarkirkja þó vígð rúmum fimm árum fyrr. Munurinn er annars sá að Hvanneyrarkirkja var í sparnaðarskyni minnkuð töluvert frá teikningu Rögnvaldar, og höfð einfaldari að innri gerð. Meginform kirknanna tveggja hugsaði Rögnvaldur þó sýnilega hið sama.


Ég hef alltaf dáðst að því hve myndarlega var að gerð og byggingu Þingeyrarkirkju staðið. Metnaður, dugnaður og framsýni einkenndi öll störf þeirra er að verkinu stóðu, svo sem rakið hefur verið af kunnugum við þessi tímamót.

Þingeyrarkirkja er með allra fallegustu guðshúsum á landinu. Nýjasta staðfesting þess er myndkaflinn ágæti sem hefur tilvísunina http://www.youtube.com/watch?v=YyvaR1TDAyo Má þar sjá bæði hið ytra og innra hve einstakt listaverk þetta guðshús er sem vörður fjarðarins á fagurlega miðlægum stað.

...
Meira
08.04.2011 - 09:55 | Hallgrímur Sveinsson

Þjóðin þarf að finna sjálfa sig aftur

Hvíta Kolla. Þann 17. júní 1995 fæddust þrír æðarungar hjá henni Hvítu Kollu í æðarvarpinu á Hrafnseyri. Dúnninn hennar var snjóhvítur, sem er ákaflega sjaldgæft.
Hvíta Kolla. Þann 17. júní 1995 fæddust þrír æðarungar hjá henni Hvítu Kollu í æðarvarpinu á Hrafnseyri. Dúnninn hennar var snjóhvítur, sem er ákaflega sjaldgæft.
Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúluhrepps, heimasveit Jóns Sigurðssonar, var haldinn 3. apríl á Þingeyri. Auk venjulegra aðalfundarstarfa voru rædd ýmis mál sem snerta landbúnaðinn og þjóðmál almennt. Samþykkt var tillaga frá Steinari R. Jónassyni í Mjólkárvirkjun, þar sem fram kemur að Íslendingar verði að leggja miklu meiri áherslu á að finna sjálfa sig aftur eftir bankaránið. Þjóðin viti varla sitt rjúkandi ráð eða hvaðan á hana stendur veðrið.

Taldi fundurinn að það sem helst gæti hjálpað okkur núna væri að taka gömlu gildin fram á nýjan leik. Spurt var hver þessi gömlu gildi væru og var nefnt sem dæmi að það væri sparsemi, nægjusemi, hógværð, lítillæti og heiðarleiki og hætta að lifa um efni fram. En þetta voru einmitt grundvallaratriði í málflutningi Jóns Sigurðssonar þegar hann var að reyna að koma Íslendingum til manns. Það sem á hans tíma kölluðust kaupstaðarskuldir hefur á okkar tíma yfirfærst á svokölluð greiðslukort, Visa, Euro og hvað þau nú heita. Þar eyða menn og spenna á nákvæmlega sama hátt: Taka út í reikning og vita svo ekkert hvað þeir skulda fyrr en kemur að skuldadögum og fá þá sumir skuldbreytt í raðgreiðslur með fullum vöxtum! Í þessum efnum verði þeir eldri að sýna æskunni gott fordæmi.

...
Meira
30.03.2011 - 17:42 | Sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir

Þingeyrarkirkja í Dýrafirði 100 ára

Þingeyrarkirkja
Þingeyrarkirkja
Á vori komanda verður Þingeyrarkirkja í Dýrafirði 100 ára. Hún var byggð á árunum 1909 - 1911 og vígð 9. apríl 1911. Áður stóð kirkja á Söndum utan og ofan við Þingeyri a.m.k. frá því á 13. öld. Árið 1909 var ákveðið að byggja kirkju á Þingeyri því að kauptúnið var að byggjast upp. Íbúar í Sandasókn voru þá 618.

Rögnvaldur Ólafsson arkitekt og húsameistari teiknaði Þingeyrarkirkju. Hún er steinsteypt í gotneskum stíl en að innan er hún prýdd fögru tréverki. Rögnvaldur var Dýrfirðingur og réð hann útliti og staðsetningu kirkjunnar á kirkjulóðinni, sem Gramsverslun á Þingeyri gaf undir kirkjubygginguna. Arkitektinn lét kirkjuna snúa í norður og suður en ekki í austur og vestur eins og viðtekin venja er og var hún látin snúa svo sem hún gerir til að bera vel við þeim sem koma af hafi til Þingeyrar.

...
Meira
09.02.2011 - 16:17 | Bjarni Guðmundsson

Af lítilli sparisjóðsbók

Bjarni Guðmundsson
Bjarni Guðmundsson
Fyrir meira en heilli öld komu nokkrir fátækir menn saman til þess að stofna sparisjóð. Þeir áttu sér draum um að efla byggðina sína: auka útgerð, og bæta jarðirnar og fleira. Þeir gengust í ábyrgð fyrir upphæð hver og einn, upphæð sem okkur þykir ekki stór nú en munaði um á þeirri tíð. Hægt og sígandi óx sparisjóðurinn. Vissulega voru viðskiptavinirnir misjafnir eins og gengur. Reist var hús yfir sjóðinn, fallegt hús á besta stað í þorpinu.


Örsmár fór ég þangað með mömmu. Man enn hve hátt var til lofts og hve virðulegar mennirnir tveir voru, sem sátu innan við  borðið er skildi á milli almennings og hins helgari hluta sparisjóðsins. Feiminn rétti ég fram aurana mína, sem mennirnir tóku góðlega við. Skrifuðu eitthvað í litla bók, sem þeir afhentu mér. Ég hafði eignast sparisjóðsbók. Á hana enn einhvers staðar ógilta með fagurrituðum tölum um það sem ég megnaði að leggja inn og hitt sem fór í það að halda mér í skóla á unglingsárum og annað spandelsi.

...
Meira
20.12.2010 - 11:53 | Hallgrímur Sveinsson og Bjarni Georg Einarsson

Tillaga að afmælisgjöf til Jóns Sigurðssonar

Bjarni Georg Einarsson
Bjarni Georg Einarsson
« 1 af 2 »
Eins og alþjóð veit, eru Íslendingar einhver spilltasta þjóð á jarðríki. Einn liður í þeirri spillingu er misnotkun á fjármunum hins opinbera og er nánast daglega í fréttum. Spurning er hvort það sé bara toppurinn á þeim ísjaka. Auðvelt ætti að vera að ganga úr skugga um það með einu pennastriki, nútíma tækni og beinni þátttöku almennings í landinu.

 


Sú hugmynd hefur skotið upp kollinum hér fyrir vestan að beina því til ríkisstjórnarinnar, að hún fyrirskipi öllum forstöðumönnum opinberra stofnana að birta á vefsíðum þeirra einu sinni í mánuði alla kostnaðarreikninga sem stofnað hefur verið til mánuðinn á undan. Og hverjir það eru sem fá þær greiðslur. Þetta á að sjálfsögðu einnig við öll laun og sporslur sem verið er að greiða hinum og þessum. Nefna má greiðslur til ríkisstarfsmanna fyrir að starfa í nefndum í vinnutíma sínum, dagpeninga, ferðakostnað, þar með taldar utanlandsferðir, kostnað við sendiráð, símakostnað og svo framvegis. Hér er auðvitað einnig átt við ráðuneytin sjálf og þá sem þeim stjórna. Og ekkert undan dregið! Ekkert. Allir sómakærir forstöðumenn munu fagna þessu aðhaldi, að ekki sé talað um Ríkisendurskoðun. Grunur okkar er sá að ef þessi háttur væri tekinn upp, mundi sjálftökuliðið hugsa sig tvisvar um og sparnaður yrði ómældur. Þetta er sára einfalt í framkvæmd og getur hvaða unglingur sem er framkvæmt ef út í það er farið.

...
Meira
18.11.2010 - 10:37 | Sigurður Arnfjörð

Flöt lækkun lána er leiðrétting á rántöku lánastofnana

Sigurður Arnfjörð
Sigurður Arnfjörð
Mikið hefur verið í umræðunni uppá síðkastið hinar ýmsu leiðir til að koma á móts við lántakendur vegna bágrar stöðu þeirra. Ég ætla með þessum pistli mínum ekki eiða miklu púðri í hverja þeirra fyrir sig. Heldur einblína á þá leið sem ég tel gæta mest réttlætis fyrir alla lántakendur. Það er flöt lækkun lána. Það er nú þannig í pottinn búið hér á Íslandi að verðtryggð lán þykir eðlilegur viðskiptamáti. Slíkt þekkist hvergi annars staðar í hinum vestræna heimi nema hér.

Mér er í fersku minni þegar ég sat í einum af mínum fyrstu Finance (Fjármálafræði) tímum í námi mínu í USA árið 2002. Í þeim tíma var prófessorinn Dr. Pepper (já sama nafn og hinn frægi gosdrykkur) að taka fyrir á töflu eitt dæmi með útreikning lána. Ég rétti upp hendina þar sem mér sýndist hann vera að gleyma stórum parti í útreikningi þessa láns en það var verðtrygging. Þar sem þetta orð er svo lítið notað í ensku máli þá þurfti ég að fletta því upp í orðabók minni áður en ég gat borið upp spurningu mína sem var þessi:

„Afsakaðu Dr Pepper en ertu ekki að gleyma verðtryggingu í útreikningum þínum"?...
Meira
11.08.2010 - 11:51 | Hallgrímur Sveinsson og Hreinn Þórðarson

Opið bréf að vestan

Hrafnseyri, mynd: jonsigurdsson.is
Hrafnseyri, mynd: jonsigurdsson.is
Á næsta ári munum við Íslendingar minnast 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar með ýmsum hætti. Meðal annars á að leggja nýja heimreið og fjölda bílastæða á fæðingarstað Jóns, Hrafnseyri við Arnarfjörð, í minningu hans.
Því miður verður að segjast alveg eins og er, að umrædd framkvæmd er að okkar dómi algjörlega óþörf og gott dæmi um það þegar opinberir aðilar kasta fjármunum alþýðu beint út um gluggann, eins og Jón Sigurðsson hefði sennilega orðað það sjálfur....
Meira
22.07.2010 - 13:22 | Hallgrímur Sveinsson

Dýrafjarðardagar slá í gegn!

Hallgrímur Sveinsson
Hallgrímur Sveinsson
Sá góðkunni útvarpsmaður, Jónas Jónasson, segir svo í bók sinni Lífsháskinn: "Fólkið í Reykjavík virðist oft ekki vita af því að austan Elliðaánna er líka til fólk sem býr yfir geysimiklum hæfileikum, frásagnarkúnst og lífsgleði. Fólkið í sveitum Íslands kann að skemmta sér, flytja menningu sína, leiklist og söng, og okkur kemur það öllum við. Ég hef stundum verið ásakaður um að vera sveitalegur í þáttagerð minni og ég tek því sem kærkomnu hrósi." (Svanhildur Konráðsdóttir, Forlagið Rvk. 1991). ...
Meira
Eldri færslur
« Október »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31