A A A
  • 1932 - Kristín Kristjánsdóttir
  • 2004 - Óttar Pétursson
  • 2006 - Carmen Kristín Vignisdóttir
07.07.2008 - 00:09 | HS

Stokkanker á Þingeyri

Hér standa þeir frændur Þórður J. Sigurðsson og Elís Kjaran við stokkankerið góða með fjörðinn sinn fallega í baksýn. Ljósm. H. S.
Hér standa þeir frændur Þórður J. Sigurðsson og Elís Kjaran við stokkankerið góða með fjörðinn sinn fallega í baksýn. Ljósm. H. S.
"Um 1990 kom hingað til Þingeyrar snurvoðarbátur frá Ísafirði. Anker var híft upp úr bátnum og skellt upp á vörubíl og ekið með það á haugana. Ég fylgdist með og fékk Magnús bróður til að hífa það upp úr gryfjunni þar útfrá og taka utan af því snurvoðarræskni. Síðan hefur ankerið verið í minni umsjá. Ég hef nú smíðaðað undir það statív og er að spá í að hafa það til sýnis í framtíðinni." Svo mælir Þórður J. Sigurðsson frá Ketilseyri, útvegsbóndi á Þingeyri. Í júlí 1685 strandaði franskt hvalaskip í Arnarneslandi í Dýrafirði. Þórður heldur því fram, þangað til annað sannara reynist, að anker hans sé úr umræddu skipi og má vel vera rétt. Þetta þarf auðvitað að rannsaka nánar.
...
Meira
07.07.2008 - 00:07 | bb.is

Fjölmenni á Dýrafjarðardögum

Víkingar létu sig ekki vanta á Dýrafjarðardaga. Myndir: Páll Önundarson.
Víkingar létu sig ekki vanta á Dýrafjarðardaga. Myndir: Páll Önundarson.
« 1 af 2 »
Víkingahátíðin Dýrafjarðadagar heppnaðist vel er hún var haldin í sjöunda sinn um helgina. „Hátíðin gekk vonum framar og það seldust yfir 700 miðar og þá eru ótalin öll leikskólabörnin og þeir sem kíktu bara stutta stund. Það var bara æðislega gaman og allt var til fyrirmyndar", segir Daðey Arnborg Sigþórsdóttir, einn skipuleggjanda hátíðarinnar. Setning hátíðarinnar fór fram í Knapaskjóli, nýrri reiðskemmu hestamanna á Söndum á föstudag en hápunktur hennar var án efa sjósetning nýsmíðaðs víkingaskips. „Skipið var sjósett á föstudagskvöld við mikinn fögnuð viðstaddra og við þetta tilefni var því gefið nafnið Vésteinn", segir Daðey Arnborg....
Meira
04.07.2008 - 00:12 | bb.is

Dýrafjarðardagar settir í sjöunda sinn

Dýrafjarðardagar er árviss þorpshátíð með víkingabrag.
Dýrafjarðardagar er árviss þorpshátíð með víkingabrag.
Dýrafjarðardagar verða settir í kvöld, sjöunda árið í röð. Að venju verður dagskrá hátíðarinnar fjölbreytt og skemmtileg, með áherslu á víkingatímann. Setning hátíðarinnar fer fram í Knapaskjóli, reiðskemmu hestamanna á Söndum, þar sem hestasýning fer fram. Í kvöld verður einnig opnuð myndlistarsýning Dagrúnar Matthíasdóttur í kaffisal sláturhússins á Þingeyrarodda og útgáfutónleikar sálmadisksins Lofgjörð til þín fara fram í Þingeyrarkirkju. Fyrir yngra fólkið verður boðið upp á sundlaugardiskó íþróttamiðstöðinni og er aldurstakmarkið er 12-17 ára....
Meira
03.07.2008 - 00:16 | eöe

"Stjörnugolf" í Meðaldal.

Þorsteinn og Logi Bergmann dáðst að 7. holu.
Þorsteinn og Logi Bergmann dáðst að 7. holu.
Um klukkna 23:00 í gærkvöldi lenti einkaflgvél á Þingeyrarflugvelli með fjóra golfara og sjónvarpsupptökulið innanborðs. Golfararnir voru Logi Bergmann Eiðsson (betur þekktur sem fréttaþula), Eyjólfur Kristjánsson (Eurovisionfari með meiru), Ragnhildur Sigurðardóttir (Íslandsmeistari kvenna í golfi) og Þorsteinn Hallgrímsson (margfaldur meistari í golfi). Hópurinn var kominn í Dýrafjörðinn til að leika eina holu á golfvelli Glámu í Meðaldal en hópurinn ætlaði sér að spila eina holu á alls átján golvöllum (par 71) hringinn í kringum landið á 24 klukkustundum....
Meira
Dagrún Matthíasdóttir við eitt verka sinna.
Dagrún Matthíasdóttir við eitt verka sinna.
Dagrún Matthíasdóttir opnar málverkasýninguna ,,Gestaboð Búffu" í sláturhúsinu á Þingeyri annað kvöld. Opnunin er liður í Dýrafjarðardögum og hefjast að lokinni setningu þeirra kl. kl. 22. Sláturhúsið og Gestaboð Búffu verður opið á laugardag og sunnudag frá kl. 14-18. „Allir gestir sem streyma til Þingeyrar, víkingar, íbúar, nágrannar, ættingjar, óætt-ingjar, staðfuglar, farfuglar, innlendir sem erlendir eru boðnir og velkomnir að líta við", segir í tilkynningu.

Dagrún Matthíasdóttir er útskrifuð frá Myndlistaskólanum á Akureyri og stundar nú nám í Nútímafræði við Háskólann á Akureyri. Dagrún er annar eigenda DaLí Gallery á Akureyri, situr í stjórn Gilfélagsins og starfar einnig með samsýningarhópnum Grálist.

Aðalfundurinn í fullum gangi. Frá vinstri. Hildigunnur Guðmundsdóttir, Auðkúlu, ritari, Hreinn Þórðarson, formaður og Steinar Ríkharður Jónasson, einn af yfirmönnum endurskoðunardeildar. Á myndina vantar nokkra af félagsmönnum sem höfðu öðrum hnöppum að hneppa. Ljósm. Hallgr. Sveinsson, ritari félagsins.
Aðalfundurinn í fullum gangi. Frá vinstri. Hildigunnur Guðmundsdóttir, Auðkúlu, ritari, Hreinn Þórðarson, formaður og Steinar Ríkharður Jónasson, einn af yfirmönnum endurskoðunardeildar. Á myndina vantar nokkra af félagsmönnum sem höfðu öðrum hnöppum að hneppa. Ljósm. Hallgr. Sveinsson, ritari félagsins.
Aðalfundur Búnaðafélags Auðkúluhrepps fyrir árið 2007 var haldinn í Mjólkárvirkjun um daginn. Í skýrslu stjórnarformanns, Hreins Þórðarsonar, bónda á Auðkúlu, kom fram að starfið á árinu var í svipuðu formi og verið hefur, en búnaðarfélögin eru sem kunnugt er grunneiningar bændasamtakanna í landinu.Það kom meðal annars fram á fundinum, að Hreinn formaður flutti lambfé í mörgum ferðum frá Ketilseyri í Dýrafirði yfir Hrafnseyrarheiði að Auðkúlu í vor. Stóðu þessir flutningar yfir í marga daga. Þrastarhjón höfðu komið sér fyrir með búskap sinn undir húsinu á dráttarvélinni sem flutti féð. Er skemmst frá því að segja að hjónin komu upp ungum sínum eins og ekkert hafi í skorist, þrátt fyrir þessa miklu flutninga og þótt dráttarvélin væri fjarverandi frá Ketilseyri langtímum saman. Mikill er máttur náttúrunnar og smáfuglarnir stórkostlegir!
Þá kom fram í sambandi við hrútamál, að grái, veturgamli hrúturinn Friðberts í Hólum, sem gekk úti í vetur í Vestfirsku Ölpunum, sást á Lokinhamratúninu um daginn í slagtogi með nokkrum kindum. Var hann furðu vel á sig kominn, þó reyfið væri tætingslegt á kalli....
Meira
30.06.2008 - 00:18 | bb.is

Umferðarslys í Dýrafirði

Lögregla var kölluð út vegna umferðarslyss á ellefta tímanum í dag.
Lögregla var kölluð út vegna umferðarslyss á ellefta tímanum í dag.
Umferðarslys var á Vestfjarðarvegi nálægt bænum Höfða í Dýrafirði á ellefta tímanum í morgun. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði var ökumaður einn í bílnum en hann mun hafa beinbrotnað. Sjúkrabifreið kom á vettvang og fór með ökumanninn á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. Að svo stöddu er ekki vitað um orsök slyssins en málið er í rannsókn. Að sögn lögreglu er ljóst að verr hefði getað farið, ökumaður var í bílbelti og það hefði sennilega bjargað lífi hans.
26.06.2008 - 00:23 | bb.is

Brúin að líkindum tilbúin í september

Úr Dýrafirði.
Úr Dýrafirði.
Brúin yfir Hjarðardalsá í Dýrafirði hefur nú verið rifin og stendur til að byggja nýja í sumar. Fyrir þá sem ekki eru staðkunnugir í Dýrafirði er Hjarðardalur rétt innan Gemlufalls og var komið að brúnni skömmu eftir að sveigt var inn fjörðinn eftir Gemlufallsheiði. „Brúin sem var einbreið var rifin um daginn og brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar er að byggja nýja", segir Geir Sigurðsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði. „Ánni var veitt með bráðabirgðaræsi á meðan. Þessi nýja brú, sem verður að sjálfsögðu tvíbreið, verður byggð í sumar og við reiknum með því að verklok verði í september."...
Meira
Eldri færslur
« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31