A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
12.06.2017 - 15:37 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Vestfirskar kirkjur á dagskrá í Edinborg

Þingeyrarkirkja sem Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.
Þingeyrarkirkja sem Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.

Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands, Biskupsstofa og Hið íslenska bókmenntafélag bjóða til málstofu og sýningar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þriðjud. 13. júní 2017 kl 14,00.

Flutt verða 6 erindi um vestfirskar kirkjur. Séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir, fyrrum sóknarprestur í Þingeyrarprestakalli, verður einn af málshefjendum.  

   Tilefnið er að út eru komin þrjú ný bindi í ritröðinni Kirkjur Íslands – hið tuttugasta og sjötta, sjöunda og áttunda – í ritröðinni Kirkjur Íslands.

   Í bindunum þremur, sem nú koma út, er fjallað um 28 friðaðar kirkjur í Vestfjarðaprófastsdæmi:

Bíldudalskirkju, Brjánslækjarkirkju, Eyrarkirkju á Patreksfirði, Gufudalskirkju, Hagakirkju, Sauðlauksdalskirkju, Saurbæjarkirkju á Rauðasandi, Selárdalskirkju, Staðarkirkju á Reykjanesi og Stóra-Laugardalskirkju. Holtskirkju í Önundarfirði, Hólskirkju í Bolungarvík, Hrafnseyrarkirkju, Hraunskirkju í Keldudal, Kirkjubólskirkju í Valþjófsdal við Önundarfjörð, Mýrakirkju í Dýrafirði, Staðarkirkju í Staðardal við Súgandafjörð, Sæbólskirkju á Ingjaldssandi og Þingeyrarkirkju. Eyrarkirkju í Seyðisfirði, Furufjarðarbænhús, Nauteyrarkirkju, Staðarkirkju í Aðalvík, Staðarkirkju í Grunnavík, Súðavíkurkirkju, Unaðsdalskirkju, Vatnsfjarðarkirkju og Ögurkirkju.

    Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum.





« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31