A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
03.08.2016 - 08:12 | Vestfirska forlagið,Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Vandi hugarfarsins - stjórnarstefnan

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir.
« 1 af 2 »

Við efnahagshrunið 2008 hrikti í stoðum íslensks samfélags, en stjórnvöldum þess tíma lánaðist þó að verja mikilvægustu undirstöður á borð við velferðarkerfið. Þeim lánaðist í harðri varnarbaráttu að leggja grunn að endurreisn efnahagslífsins með þeim árangri að nú er komið góðæri á Íslandi. Þrátt fyrir það hriktir enn í samfélagsstoðum okkar, átta árum síðar.  Svo virðist sem ástæðan sé meinsemd ekki alls óskyld þeirri sem plagaði íslenskt samfélag í aðdraganda hrunsins: Slakt stjórnarfar og skeytingarleysi um mikilvæg samfélagsleg grunngildi.

Eitt af síðustu verkum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur var að fjármagna metnaðarfulla fjárfestingaáætlun sem hrinda átti í framkvæmd á þessu kjörtímabili. Með veiðleyfagjöldum, arðgreiðslum af sölu banka og sanngjörnum breytingum á skattkerfinu var gerð áætlun um 40 milljarða viðbótar tekjustreymi í ríkissjóð til að hrinda í framkvæmd innviðafjárfestingu, nýsköpunarverkefnum og rannsóknum fyrir allt að 80 milljarða á fáum árum.

Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks lét verða sitt fyrsta verk að afnema þessa fjárfestingaáætlun skömmu eftir síðustu kosningar. Síðan sú ákvörðun var tekin hefur straumur ferðamanna enn aukist og valdið auknu álagi á ýmsa innviði samfélagsins, meðal annars samgöngumannvirki og heilbrigðiskerfi. Náttúran á víða undir högg að sækja vegna mikils ágangs. Vegakerfið liggur undir skemmdum af sömu sökum. Heilbrigðiskerfið er í hættu – stofnanir þess glíma við mygluskemmdir og lélegt viðhald. Með öðrum orðum: Innviðir samfélags okkar eru komnir að þolmörkum og sumir eru við það að bresta.

Frá 2008 hefur opinber fjárfesting dregist saman um 47%.  Uppbygging atvinnuvega á borð við ferðaþjónustu er í uppnámi. Öryggi borgaranna er ógnað á viðhaldslausum vegum við fjársvelta löggæslu og þjónusta við almenning er skert. Í þingumræðum í vetur gekkst fjármálaráðherra við hluta vandans, en taldi þó ekki svigrúm nú í góðærinu til þess að bæta úr. Tja, nema þá helst með því að „draga saman seglin í  opinberum rekstri“ eins og hann orðaði það.  

Það er umhugsunarefni að ríkistjórnin skuli beina sjónum að frekari niðurskurði í opinberum rekstri þegar allir vita að ekki verður lengra gengið í þeim efnum. Þvert á móti er innspýting nauðsynleg. Velferðarkerfið hefur nú þegar verið höggvið inn að beini og velflestar opinberar stofnanir berjast í bökkum. Niðurskurðaráherslan er ekki síst umhugsunarefni vegna þess að á sama tíma bíða vannýttir tekjustofnar, eins og marg oft hefur verið bent á.  Sannleikurinn er nefnilega sá, að ríkisstjórnin hefur sjálf haft svigrúmið í hendi sér, en vill af einhverjum ástæðum ekki nota það. Þess í stað tók hún úr sambandi full fjármagnaða fjárfestingaáætlun fyrri ríkisstjórnar upp á 80 milljarða og tekjuleiðirnar sem henni fylgdu. Enn bólar ekkert á gjaldtöku ferðaþjónustunnar sem fénýtir þó íslenskar náttúruperlur með sívaxandi ágangi. Blóðugt er að sjá eftir milljörðum sem taka hefði mátt í formi eðlilegrar auðlindarengu af nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. Á sama tíma eykur útgerðin eignamyndun sína um 80 milljarða.

Ekki skortir þó viljann til þess að einkavinavæða valdar eignir, eins og þegar Borgun var seld til útvalinna aðila bak við tjöldin. Þeir sem hrepptu það hnoss hafa nú þegar hagnast um tugi milljarða króna sem betur hefðu farið í ríkissjóð og þaðan til viðgerða á ónýtu húsnæði í eigu hins opinbera, eða til uppbyggingar á löskuðu vegakerfi.

Má því ljóst vera að þegar ráðamenn tala um takmarkað svigrúm og niðurskurð í ríkisrekstri þá talar þeir gegn betri vitund. Svigrúmið er til staðar sé vilji fyrir hendi. Það veit fólkið í landinu líka. Peningar eru ekki vandamálið. Vandinn liggur í hugarfarinu. Hann liggur í stjórnarstefnunni.

 

(Þessi grein birtist í Mbl 2. ágúst 2016)

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31