A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
17.01.2018 - 06:54 | Vestfirska forlagið,Stjórnarráðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Styrkur til sendiráða Íslands í Kaupmannahöfn og Berlín í tilefni 100 ára afmæli fullveldis Íslands

Norðurbryggja í Kaupmannahöfn hvar Sendiráð Íslands er.
Norðurbryggja í Kaupmannahöfn hvar Sendiráð Íslands er.

Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun að veita 10 millj. kr. framlag af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar vegna framkvæmdar afmælisdagskrár á vegum sendiráðanna í Kaupmannahöfn og Berlín.

Megin áhersla verður lögð á að fagna tímamótunum með dagskrá í þessum tveimur mikilvægu samstarfslöndum Íslands; Danmörku og Þýskalandi.

Í fyrra tilvikinu, í ljósi tvíhliða eðlis málsins, munu dönsk stjórnvöld minnast tímamótanna með viðburðum á fræða- og menningarsviðinu, með þátttöku forseta Íslands, auk þess sem Margrét Danadrottning hefur þegið boð forseta Íslands um þátttöku í hátíðarhöldum á Íslandi þann 1. desember 2018. 

Í síðara tilvikinu, Þýskalandi, er um að ræða leiðandi ríki í Evrópu, sem jafnframt er eitt allra mikilvægasta samstarfsríki og viðskiptaland Íslands í heiminum í dag. 

Sendiráðin í báðum löndum hafa lagt drög að vandaðri og umfangsmikilli dagskrá sem skipulögð hefur verið í nánu samráði við fræða- og menningarstofnanir og kynningarmiðstöðvar heimafyrir og í hlutaðeigandi gistiríkjum.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30