A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Spekingarnir og smalarnir Grímur á Eyrinni og Miðbæjarkarlinn sitja hér við veisluborð í Hólum hjá þeim hjónum Ástu Guðríði Kristinsdóttur og Friðberti Jóni Kristjánssyni. Í tilefni dagsins auðvitað! Ljósm.: Ásta G. Kristinsdóttir.
Spekingarnir og smalarnir Grímur á Eyrinni og Miðbæjarkarlinn sitja hér við veisluborð í Hólum hjá þeim hjónum Ástu Guðríði Kristinsdóttur og Friðberti Jóni Kristjánssyni. Í tilefni dagsins auðvitað! Ljósm.: Ásta G. Kristinsdóttir.

Spekingarnir í heita pottinum á Þingeyri eru miklir spekingar eins og kunnugt er. Í morgun voru þeir auðvitað að ræða málefni dagsins, hvað annað. Það kom fram í umræðunni að ef og þegar þeir komast á þing, þá muni þeir um leið og þeir koma þar inn úr dyrum leggja fram frumvarp um að farið verði eftir lögum um launajafnrétti karla og kvenna á landi hér. Og þeir muni heimta að það virki þrjú ár aftur í tímann.

    En hvar er það sem skórinn kreppir að í þessum efnum var spurning sem brann á sumum. Það er nefnilega það! Það var gáfulega spurt eða hitt þó heldur. Eru þó bæði sagnfræðingar, fræðimenn, smalar og húsmæður í umræddum spekingahóp. En það er eins og fyrri daginn: Það er ekki nóg að geta hlaupið ef vitið vantar! Hvar nákvæmlega er verið að mismuna: Er það í kennarastéttinni, hjá hjúkrunarkonum, sjúkraliðum, flugfreyjum, frystihúsum,  trésmiðum, pípulagningamönnum, á skrifstofum, á Veðurstofunni, á sjó, í ríkisstjórninni eða við afgreiðslustörf? Svo örfá dæmi séu nefnd. Þeir sem standa fyrir slíkri mismunun ættu að fara beint undir lás og slá. Það eru lög í landinu.


« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31