A A A
07.07.2016 - 06:57 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Sjónvarpspistill: - Hvers vegna ekki meira af slíku?

Ási í Bæ.
Ási í Bæ.
« 1 af 2 »

Það er merkilegt þetta blessaða Sjónvarp okkar.

Stundum getur það komið manni algjörlega í opna skjöldu. Sjáið til dæmis þáttinn um hann Ása í Bæ í gærkvöld, Ástgeir Kristinn Ólafsson, í þáttaröðinni Íslendingar. Dagskrárefni úr safni RÚV, umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason sem hefur verið sjónvarpinu dýrmætur starfsmaður í gegnum tíðina. Einfaldlega ljómandi þáttur fyrir allt venjulegt fólk! Þetta hefur verið stórkostlegur maður hann Ási í Bæ. Það merkilega er að það hafa verið margir slíkir karakterar í öllum sjávarbæjum á Íslandi. Og í sveitum landsins.

Auðvitað á Sjónvarpið að gera meira af slíku. Draga fram þá persónuleika sem eru hvarvetna í kringum okkur. Nógur er efniviðurinn.

   Og meðal annarra orða: Hvenær kemur að því að Sjónvarpið endursýni alla sjónvarpsþættina hans Hemma Gunn? Það er varla búinn til sá skemmtiþáttur í dag, að ekki sé gengið í sjóðinn hans Hemma og teknar stiklur frá honum.  Af hverju ekki að birta þættina óstytta?

« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30