A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
07.09.2016 - 20:35 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Nýlunda nokkur á Þingeyri: - Norska skemmtiferðaskipið Fram í höfn í gærmorgun

M/b Egill sýnist ekki  stór miðað við það norska. Sem er svo aftur eins og korktappi miðað við fljótandi hallirnar sem koma á Ísafjörð þessi misserin. Ljósm. H. S.
M/b Egill sýnist ekki stór miðað við það norska. Sem er svo aftur eins og korktappi miðað við fljótandi hallirnar sem koma á Ísafjörð þessi misserin. Ljósm. H. S.

Stærðar skip var komið í höfn á Þingeyri í gærmorgun í þann mund sem innbyggjarar staðarins fóru á kreik. Þar var á ferðinni skemmtiferðaskipið Fram frá norska fyrirtækinu Hurtigruten. Skipið er í siglingum á norðlægum slóðum, sérstaklega við Grænland, norðlæga sumarið en er í annan tíma við Antarktíku.

    Skipið heitir eftir skipi landkönnuðanna norsku Roald Amundsen og Fridtjof Nansen. Fram nútímans var smíðað í Ítalíu árið 2007, er 114 m langt og er með 280 farþega innanborðs.

   Fram er svo aftur væntanlegt til Þingeyrar 10. sept. n. k.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30