A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
21.08.2017 - 07:04 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Náttúrulistasalurinn Ísland: - Er eftir einhverju að bíða?

Heita laugin á Dynjanda sem fáir vita um. Laugarhitinn er um 27 gráður á C. Þær eru margar perlurnar bara á Vestfjörðum! Ljósm.: H. S.
Heita laugin á Dynjanda sem fáir vita um. Laugarhitinn er um 27 gráður á C. Þær eru margar perlurnar bara á Vestfjörðum! Ljósm.: H. S.

Tillögur okkar hér fyrir vestan og margra fleiri um að láta erlenda ferðamenn greiða aðgangseyri að Náttúrulistasalnum Íslandi verða sífellt umhugsunarverðari. Með hverjum deginum sem líður. Fimm þúsund krónur á hvern fullorðinn ferðamann í komugjald til landsins er algjört lágmark. Í hvað skal nota þá fjármuni? Jú, til að greiða fyrir alls konar nauðsynlega þjónustu við ferðamanninn. Og til að forða því að landið fari í svað fyrir stjórnleysi.

Ferðamaðurinn sjálfur skilur þetta miklu betur en við, sbr. skoðanakannanir. Og hlær að okkur.

   Ísland er stórasta land í heimi. Þeir sem kunna að græða selja gistingu yfir eina nótt á 100 þúsund kall. Oft meira að sögn. Leigja inniskó sem kosta 600 kr. í innkaupum á 1,500 kr. í nokkra klukkutíma. Og harðfiskkílóið selja sumir á 26,000 kr. Og landinu blæðir því það má ekki leggja á smá komugjald. Sem flugfélögin geta innheimt eins og að drekka vatn. Það vilja þau náttúrlega ekki gera ótilneydd. Þau eiga bara að græða á ferðamanninum. 


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30