A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
24.08.2017 - 17:34 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Hreppsnefnd Auðkúluhrepps ályktar: - Tímabært að endurræsa hreppinn og hefja uppbyggingu í kjölfar Dýrafjarðarganga!

Gamli oddvitinn og hreppstjórinn í Auðkúluhreppi stinga saman nefjum. Það hlýtur að vera eitthvað skemmtilegt á dagskrá!
Gamli oddvitinn og hreppstjórinn í Auðkúluhreppi stinga saman nefjum. Það hlýtur að vera eitthvað skemmtilegt á dagskrá!

Gamla hreppsnefndin í Auðkúluhreppi kom undan feldinum í morgun. Þar hefur hún legið um nokkurt skeið og íhugað ýmis framfaramál hreppsins að fornu og nýju. Ævintýrið um Dýrafjarðargöngin hefur blásið nýju lífi í hina gömlu hreppsnefnd. Aldrei að vita til hvers það getur leitt. Því nú er lag. 

   Á fundinum samþykkti nefndin að hefja nú þegar baráttu fyrir því að endurræsa hreppinn og starta uppbyggingu. Móttóið á að vera: Færum völdin aftur nær fólkinu! Sem sagt að völdin verði aftur færð heim í hérað. Var kosin nefnd í málið og hefur hún þegar hafið störf eða þannig. Í henni eru ýmsir nafnkunnir menn hér vestra, bæði lífs og liðnir. Sumir jafnvel á mörkunum.

   Þessi samþykkt veldur nokkrum tímamótum. Um hana má auðvitað segja líkt og sumir spekingar hafa stundum orð á: Margt er sér til gamans gert. En ekki má gleyma því að öllu gamni fylgir nokkur alvara!



« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31