06.04.2011 - 11:27 | JÓH
Góður árangur í Skólahreysti
Lið Grunnskólans á Ísafirði sigraði Vestfjarðariðilinn í undankeppni Skólahreysti á fimmtudag. Þar með er liðið komið áfram í úrslitakeppnina sem haldin verður í Laugardalshöllinni í Reykjavík laugardaginn 28. apríl. Grunnskólinn í Bolungarvík lenti í öðru sæti og Tálknafjarðarskóli í því þriðja, en aðeins munaði einu stigi á Tálknafjarðarskóla og Grunnskólanum á Þingeyri. Lið Grunnskólans á Þingeyri skipuðu þau Jóhanna Jörgensen, Ragnhildur Anna Ólafsdóttir, Heiðdís Birta Jónsdóttir, Davíð Sighvatsson, Guðmundur Ragnarsson og Arnar Logi Hákonarson.
RÚV sýnir þætti af öllum riðlum á þriðjudagskvöldum kl. 20:10, og verður Vestfjarðariðillinn í sjónvarpinu þann 12. apríl næstkomandi.
RÚV sýnir þætti af öllum riðlum á þriðjudagskvöldum kl. 20:10, og verður Vestfjarðariðillinn í sjónvarpinu þann 12. apríl næstkomandi.