A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
16.12.2016 - 21:36 | Vestfirska forlagið,Komedia

Gísli á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu

Elfar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.
Elfar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.

Hin vinsæla og áhrifamikla sýning Gísli á Uppsölum verður sýnd í Þjóðleikhúsinu í janúar 2017. Fyrsta sýning í Þjóðleikhúsinu verður föstudaginn 13. janúar og eru aðeins örfá sæti laus á þá sýningu. Önnur sýning verður sunnudaginn 15. janúar kl.14. Miðasala á báðar sýningarnar fer fram á www.tix.is 

Sýningin um Gísla á Uppsölum hefur fengið frábærar viðtökur og var nú síðast á uppseldri senu á Selfossi. Leikurinn hefur nú þegar verið sýndur um 20 sinnum hér og þar um landið. Frumsýnt var á söguslóðum í Selárdal í lok september. Eftir það hefur leikurinn m.a. verið sýndur á Þingeyri, Hvammstanga, Ísafirði, Patreksfirði, Akureyri og Bolungarvik. 

Áhorfendur hafa orðið og hafa þeir m.a. þetta hér að segja um leiksýninguna Gísli á Uppsölum:

 

,,Stórkostlegt í einu orði sagt."

,,Þessi sýning kom við allan tilfinningaskalann."

,,Mæli hiklaust með sýningunni sem er allt frá því að vera afar sorgleg uppí bráðskemmtileg."

,,Fór á alveg brilljant leiksýningu áðan. Það var einleikurinn Gísli á Uppsölum sem um ræðir og mæli ég eindregið með henni!"

,,Það er ekki heiglum hent að túlka líf manns einsog Gísla, þannig að hvorki gæti háðs né harms úr hófi fram. En þetta tókst Elfari Loga með miklum ágætum."

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31