A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
Þessi mynd er tekin af veginum út að Sveinseyri í Dýrafirði. Hvað skyldu það vera margir bílar sem mynda þetta rykský. Svar: Aðeins einn! Ljósm.: H. S.
Þessi mynd er tekin af veginum út að Sveinseyri í Dýrafirði. Hvað skyldu það vera margir bílar sem mynda þetta rykský. Svar: Aðeins einn! Ljósm.: H. S.

Nú hafa dýrfirskir spekingar loks fundið upp formúluna að svokölluðum rykhraða á vegum með óbundnu slitlagi.

Formúlan  er svona =A í öðru veldi +B í þriðja veldi = 45 km meðalhraði á klst. Þetta þykir náttúrlega dálítið sérstakt, en er samt sem áður staðreynd.

Tökum sem dæmi bifreið sem ekur á 90 – 100 km hraða á vegi sem er skraufþurr af margra vikna þurrki. Hann sendir líklega út í andrúmsloftið nokkur kg af ryki á hvern ekinn km. Sem er náttúrlega ekkert annað en ofaníburður, sá fínasti úr veginum.

Bifreið sem aftur á móti ekur á 45 km meðalhraða sendir sama og ekkert út í andrúmsloftið af ofaníburði. Þið ættuð að prófa þetta sjálfir lesendur góðir. En kannski liggur okkur alltaf svo mikið á að við megum ekkert vera að því að spekúlera í svona löguðu!

En væri ekki í lagi að slá aðeins af? Sérstaklega ef maður er nú í sumarfríi!

 

Hallgrímur Sveinsson.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30