A A A
  • 1931 - Kristjana Vagnsdóttir
  • 1959 - Höskundur Brynjar Gunnarsson
  • 1999 - Brynjar Proppé Hjaltason
  • 1999 - Anton Proppé Hjaltason
  • 2001 - Ásrós Helga Guðmundsdóttir
  • 2002 - Alexander Leon Kristjánsson
  • 2008 - Beniamín Smári Gestsson
12.08.2016 - 20:17 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Babb í bátinn á Flateyri

Guðberg Kristján Gunnarsson og Ólafur V. Þórðarson voru kampakátir á steypta strætinu á Flateyri. Ljósm. H. S.
Guðberg Kristján Gunnarsson og Ólafur V. Þórðarson voru kampakátir á steypta strætinu á Flateyri. Ljósm. H. S.

Nú er komið Babb í bátinn á Flateyri í Önundarfirði. Samkvæmt gömlu orðabókinni okkar þýðir það strik í reikninginn. Ekki vitum við samt af neinu sérstöku babbi á þeim góða stað, nema þetta sem allir vita: Hrörnun byggðarinnar eins og víðar hér vestra. Á gamla frystihúsinu hafa listamenn aftur á móti látið ljós sitt skína eins og sjá má í baksýn myndarinnar.

   Höfðingjana tvo á myndinni þekkja margir sem þetta lesa. Auðvitað eru þetta Kristján Gunnarsson, bóndi frá Miðbæ í Haukadal, sem fullyrða má að sé sérfræðingur í sauðfjárrækt. Og svo Ólafur V. Þórðarson frá Auðkúlu í Arnarfirði til hægri. Hann var lengi verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga á Þingeyri, útvegsbóndi og gamall kvótagreifi.

Þeir félagar voru í opinberri heimsókn á Flateyri í gær sem fulltrúar Vestfirska forlagsins ásamt þeim sem þetta ritar.

« Mars »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31